Ljóð í myndum og hljóði
HANDS BANG BANG BANG & GUNS – Björk Viggósdóttir
i8 Björk tekst að gera ótrúlega mikið úr því litla rými sem hún
hefur úr að spila og skapar hér verk sem gætt er þeirri
óraunveruleikatilfinningu sem hún leitar eftir og nefnir í sýningarskrá.
...........................................
Ath. þetta er mynd eftir Kristinn E. Hrafnsson. Birtist vegna mistaka.
— Morgunblaðið/Ásdís
Opið þri. til fim. frá kl. 11-17 og 13-17. lau. Aðgangur ókeypis
BJÖRK Viggósdóttir (1982) útskrifaðist með láði
ef svo má segja frá Listaháskóla Íslands síðastliðið vor, 2006. Þar
vakti lokaverkefni hennar athygli fyrir frumlega myndhugsun og
áhugaverða tilraun með þanþol málverksins, hún sýndi nokkra dirfsku með
því að setja fram opið og órætt verk sem treysti á áhorfandann. Nýlega
var Björk síðan valin til að gera myndbandsverk fyrir Þjóðleikhúsið í
sýninguna Bakkynjur. i8 fylgist augljóslega nokkuð með listamönnum af
yngri kynslóðinni og Björk hefur án efa staðið undir væntingum
forráðamanna gallerísins með innsetningu sinni undir stiganum, minnsta
sýningarrými borgarinnar. Verk Bjarkar nefnist HANDS BANG BANG BANG
& GUNS. Hér er vísað til myndbands sem sýnt er á endavegg, en þar er
það dansarinn Sigríður Soffía Níelsdóttir sem dansar fingradans, hendur
hennar hanskaklæddar skapa síbreytilegan skúlptúr sem birtist og
hverfur í samhverfu. Eftirlíking af byssu liggur á gólfi og eitthvað
bleikrautt við hlaupið sem gæti minnt á blóm. Kannski er hér vísað til
grínbyssu sem blóm sprettur fram úr eða hippauppreisnar þar sem mælt var
með blómum í byssukjaftana. Eða hljómsveitarinnar Guns and roses?
Hugrenningar sem þessar eru nokkuð einkennandi fyrir verk Bjarkar, hún
leyfir verkinu að lifa sínu eigin lífi og treystir á myndræn og hljóðræn
áhrif þess, en myndbandinu fylgir hljóðupptaka af rólegu popplagi. Eins
og tíðkast nokkuð meðal myndlistarmanna og tónlistarmanna í dag er
unnið óhikað innan beggja heima. Ef til vill hafa þau tengsl sem
einhvern tíma voru nokkur milli skálda og málara yfirfærst á
myndlistarmenn og tónlistarmenn, það er spurning hvar það staðsetur
skáldin og rithöfundana? Er kannski að koma tími á sýningu með verkum
yngstu kynslóðar myndlistarmanna, skálda, tónlistarmanna og rithöfunda
og fá þannig þverskurð af listalífi nýrrar kynslóðar?
Björk tekst að gera ótrúlega mikið úr því litla rými sem hún hefur úr að spila og skapar hér verk sem gætt er þeirri óraunveruleikatilfinningu sem hún leitar eftir og nefnir í sýningarskrá. Samhverfð myndbygging myndbandsins er ef til vill kunnugleg en á móti koma ljóðrænir myndrænir þættir og litanotkun sem er persónuleg og í takt við samtímann. Uppbrot málverksins í myndrænar, þrívíðar einingar sem virkja rýmið í heild hafa verið uppi á teningum um nokkurt skeið, hér tekst Björk á við erfitt rými og skapar á sannfærandi hátt heildarinnsetningu sem nær að fanga áhorfandann, nokkuð vel af sér vikið af ungri og nýútskrifaðri listakonu.
Ragna Sigurðardóttir

0 Comments:
Post a Comment
<< Home